Betri gangur í að koma þeim út, en inn.

 Glæpamenn á Íslandi komast upp með ýmislegt, eins og gengur. Ræna samfélagið í hinum ýmsu myndum og sleppa jafnvel án refsingar. Þeir sem nást, eru dæmdir og settir í afplánun og fá betri meðferð en öryrkjar gamalmenni og annað úrkast samfélagsins sem stjórnmálastéttin hefur gleymt fyrir margt löngu. Til eru dæmdir glæpamenn á Íslandi sem hafa heimtað rauðvín með steikinni meðan á afplánun þeirra stóð. Hugsið ykkur barasta!

 Nú virðist sem glæpamönnum gangi ansi vel, jafnvel enn betur en áður að koma sér undan réttvísinni. Panta sér flugmiða á netinu og borga með eigin korti, beint úr steininum, fá einhvern til að pikka sig upp fyrir utan jeilið og ferðast síðan með forsætisráðherra á Sagaclass til útlanda! 

 Enginn er að sjálfsögðu ábyrgur fyrir þessari andskotans vitleysu, enda emættismenn þessa lands ósnertanlegir andskotans amlóðar upp til hópa sem enga ábyrgð bera, frekar en fyrri daginn.

 Þetta er skandall og það á að reka fangelsismálastjóra samstundis! Tollstjórinn á Keflavíkurflugvelli mætti fylgja með, því jafnvel morðingjar hafa sloppið framhjá gerfiöryggiskerfinu á vellinum sem virðist ekki miklu skila miðað við þetta síðasta niðurlægingardæmi. Geta embættismenn endalaust yppt öxlum og sagt æ æ okkur urðu á mistök en haldið stöðum sínum. Á almennum markaði væri svona svona aulum vikið samstundis úr starfi. 

 Ekki að furða að öryggisgæsla á KEF sé lágt metin.

 Goðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Minnir á borgaralega handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband