Er búið að dæma?

 Það er misjafnt hve saksóknarar eru viljugir að tjá sig um einstaka mál. Oftast nær gefa þeir ekki mikið upp, meðan á rannsókn stendur, enda getur það skaðað meðferð mála, sem eru í vinnslu. Í þessu tilfelli er búið að kæra, en ekki liggur enn fyrir hver upphæðin er, sem kært er fyrir undanskot á. Rannsókn hvergi nærri lokið, en saksóknari tjáir sig um málið eins þetta sé nánast afstaðið. Þetta geta varla talist góð vinnubrögð. Hvernig má það vera að ákæruvaldið gasprar í fjölmiðla í miðri rannsókn og gefur eitthvað til kynna, sem jafnvel stenst síðan ekki að lokum? Þetta eru fáheyrð vinnubrögð og embætti "Sérstaks" engan veginn til framdráttar. Það þarf ekki lögfróða til að sjá það, eða hvað?

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Fjárhæðin mun hærri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það er óhætt að taka undir þetta og ítreka að svona yfirlýsingar eru embætti "Sérstaks" ekki til framdráttar.  Reyndar eru þær frekar til skammar og óréttlætanlegar á rannsóknartíma.

Fram kemur í fréttinni að skýringar hafi fengist á ýmsum færslum sem til skoðunar voru og ekki ólíklegt að fleira skýrist við rannsóknina.  Því er algerlega óréttlætanlegt að verið sé að gefa út svona yfirlýsingar í miðri rannsókninni.

Axel Jóhann Axelsson, 15.10.2015 kl. 16:53

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Já Axel, madur á varla ord yfir thetta. Held hreinlega ad thetta hljóti ad flokkast undir embaettisafglöp, en thad er annara ad finna út úr thví. Furdulegt er thetta í öllu falli.

Halldór Egill Guðnason, 16.10.2015 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband