Nokkuð þéttur, Elliði.

 Gott útspil hjá Elliða. "Viljið þig mig, eða ekki" og verður spennandi að fylgjast með. Gangi Elliða allt í haginn, sem og öllum Eyjamönnum. Vestmannaeyingar eiga völina, sem og kvölina, eftir því hvernig á það er litið.

 Svona fréttir kveikja í kjósendum og gera þá virka í umræðum, fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í þessu máli skipta skoðanakannanir (sá andskotans dragbýtur) engu máli. Hér er tekist á um menn og málefni, sem er gott. Núverandi fulltrúi og leiðtogi setur tóninn. Bæjarbúar fá að reyna á hugarafl sitt og geta sagt.: Fari allar skoðanakannanir og ömurlegir fjölmiðlar  til fjandans! 

 Nú skal tekist á um málefni, frammistöðu og verk þeirra, sem haft hafa umsjón með samfélagi okkar. Líkar okkur það og viljum áfram treysta sama fólki, eða skal stokkað upp og gefið á ný?

 Tíminn einn, leiðir það í ljós.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Elliði skipar fimmta sæti í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband