Dagur að kveldi komin?

 Sú ákvörðun borgarinnar, að aðeins tvær sundlaugar skuli lengja opnunartíma sinn, sýnir hvurslags bjálfar ráða Reykjavíkurborg. Hver er munurinn á Grafarvogsbúa og Breiðhyltingi, Vesturbæingi eða öðrum borgarbúum? 

 Það eru greinilega engin takmörk, fyrir heimsku borgarstjórnarmeirihlutans. Hvenær ætli dagur renni að kveldi, hjá þessu óútreiknanlegu liði?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Íbúum verði ekki mismunað eftir hverfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dapur pólitíkus án afreka..

 Brjáluð dómgreind Össurar stefndi að því einu, á lokametrum póltísks ferils hans, að aflýðræðisvæða Ísland og henda stjórnun landsins til Brussel, með von um feita skattfrjálsa tékka og þægilegheit. Dæmigerður kratahugsunarháttur hans, kom honum aldrei neitt áleiðis, þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar. Ef VG og Sjálfstæðisflokurinn koma sér saman um stjórnarsamstarf, er ekkert við það að athuga. Svona eiturpílur fúllyndra fallkandídata, úr pólitískri misheppnaðri fortíð, ætti fólk í lengstu lög að láta sér sem vind um eyru þjóta. 

 Niðurrifsraddir, álíkar Össurar, munu glymja á þjóðinni fram að kosningum. Látum ekki glepjast af misheppnuðum, fyrrum stjórnmálamönnum, þó þeir gaspri á viðbjóðsmiðlinum Facebook, bloggi eða öðrum miðlum, hvort heldur er undir nafninu Skeggi einhversson, eða Össur Skarphéðinsson.

 Þingvallaurriðinn bíður, Össur. Þar er þinn heimavöllur og skínandi góð frammistaða þín þar, mun örugglega fleyta þér yfir á ellistyrkinn. Ráðherraeftirlífeyrir og annað sem fylgir þeim forréttindum að komast á þing, mun verða reglulega greitt út, mánaðarlega, úr sjóðum alþýðunnar, án nokkurs tillits til árangurs þíns í starfi. Verði þér að góðu, ásamt allraflokkakvikyndum, sem samþykktu viðbjóðinn og viðhalda honum, meðan alþýðan er skert um krónu á móti krónu.

 Láttu fortíðina og eigin afglöp ekki trufla framtíðina. Þú fékkst þitt tækifæri. Nú eru aðrir á sviðinu. "Get lost"

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Segir dómgreind Katrínar hafa brjálast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband