Stjórnmálafræðingurinn og fréttamenn.

 Það er hábölvað, að á Íslandi virðist einungis einn stjórnmálafræðingur vera til. Hann kemur ofan úr Bifröst. Eftir tungutaki hans og tilvitnunum, dansa síðan fláráðir frétta og blaðasnápar, með opinmyntan túlann og skrifa sínar greinar og pistla. Ekki samkvæmt fréttunum, heldur áliti mannvitsbrekunnar af Bifröst. 

 Sjaldan, ef nokkurn tímann, hefur blaða og fréttamannastétt þessa lands, lotið jafn djúpt, í eigin getuleysi. Lélegir diktarar, eftir skríbent úr Borgarfirðinum. 

 Fréttamenn....nei ekki aldeilis. Geta ekki einu sinni endursagt neitt, á hlutlausan hátt, án álits frá Bifröst.

 Svei þessari stétt, sem telur sig þess umkomna, að kalla sig fjölmiðlastétt. 

 Stórt FRUSS á þetta lið.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Meiri líkur en minni á að þetta náist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að snúa öllu á hvolf, með von um stól.

 Fyrir utan að lofa öllum paradís á jörð, í aðdraganda kosninganna, hefur formaðurinn nú snúið öllu á hvolf, þá er kemur að hugsjónum hans, í stjórnarmyndunarviðræðum. Þær má auðveldlega "díla" og "gambla" með, ef fæst stóll. Hvað varð um ónýtu Krónuna og allt fyrir alla, hvað sem það kostar og ónýta Stjórnarskrá?

 Steingrímur J. endurfæddur, nema núna í bláum jakka, með tösku um öxl og hendurnar eins og Jesú Kristur og ber sig að eins og hinn eilífi sannleikur sé á ferð. (Fyrir utan von um stól)

 Flensur og allskyns pestir hafa farið af stað, fyrir minna en þetta. Jafnvel plágur!

 Vonandi finnst mótefni, í tæka tíð.

(Meðan ég man, hvar er Steingrímur og eilífðarfýlupúkinn Svandís? Er VG ein manneskja, eða stjórna henni óræð öfl, sem dúkka ekki upp á yfirborðið, fyrr en senditíkin hefur unnið skítverkin?)

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Atkvæðagreiðsla um ESB ekki skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband