Hverjir koma að fjárlagafrumvarpi?

 Það er í meira lagi undarlegt að einn af ráðherrum í Ríkisstjórn Íslands, skuli koma fram eins og álfur út úr hól, þegar einni stofnun sem undir hann heyrir, er gert að skera svo niður í rekstri sínum að varla er hægt að halda úti lágmarksstarfssemi. Kom ráðherrann ekkert að þessari fjárlagagerð, eða hefur hann ekki meira vit á þeim málaflokki, sem undir hann heyrir?. Að koma fram með svona hvítþvottarþvælu er ekkert annað en pínlegt. Í besta falli grátbroslegt yfirklór. Hvar var sjávarútvegsráðherra, meðan á gerð fjárlaga ríkisins stóð?

 Tuðari spyr, en fær að sjálfsögðu engin svör.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Stóð alltaf til að finna leiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loftslagsnefnd Sameinuðu Þjóðanna.

 Loftslagsnefnd Sameinuðu Þjóðanna hefur sett staðal fyrir hitastig á jörðinni. Hvaðan hún fær þann staðal, er erfitt að segja. Þessi fáránlega "frétt" er svo arfavitlaus að manni liggur við uppsölum. 40% hraðar en hvað, eru höfin að hitna um? Er loftslagsnefnd UN alvitur um hitastig á jörðinni, eða hvenær höfin hafa verið heitust, eða köldust? Hvernig stendur á því að í suðurhöfum kólnar hafið? Jafnvel um tvær til þrjár gráður á síðustu tíu árum! Hvar er öll þessi hlýnun? Er hún einungis hér norðurfrá, eða verður hennar vart víðar? Hvar eru þessir heitu reitir? Hvað hefur yfirborð sjávar hækkað mikið á undanförnum árum? Hvað er kjörhitastig sjávar um allan heim? Hver "veit" það svo vel að hann geti fullyrt nokkuð? Hvert er kjörhitastig jarðarinnar og við hvað er þá miðað, annað en álit fjörtíu þúsund pólitískra fífla í París, eða Al Gore í einkaþotunni?

 Meiri andskotans vitleysan sem þessi umræða er komin út í. Við eigum að ganga vel um náttúruna og haga okkur eins og fólk. Menga eins lítið og við getum og vera nýtnari á það sem við höfum. Mannkynið þrífst einfaldlega alls ekki, án þess að menga eitthvað. Það má hinsvegar draga stórlega úr mengun með réttu hugarfari og aðgerðum sem stuðla að minni losun mengandi efna. Það er einföld staðreynd. Til þess þarf ekki fjörtíu þúsund létt og kampavínssötrandi pólitíkusa, svo mikið er víst. Plastið er sennilega einn alversti skaðvaldurinn. Við eigum að draga eins mikið úr subbuskap og óvirðingu við náttúruna og komandi kynslóðir, með skynsamlegri umgengni um auðæfi okkar. Þessi jörð er jú sú eina sem við höfum!

 Alhæfingar um heimsendi af okkar völdum hafa tekið yfir alla skynsamlega umræðu, enda umræðunni stjórnað af þeim, sem hagsmuna hafa að gæta og eiga ávallt greiðan aðgang að opinmynntum fjölmiðlabjálfum, sem gleypa allt hrátt og án athugasemda eða spurninga, sem að þeim er rétt. 40% meira en hvað? Einhver? 

 "Jafnvel þó við séum ekki á þeim stað, fyrir þá útkomu sem við viljum sjá".

  Allsherjarlausnin á semsagt að felast í auknum álögum á almenning í formi ótal aukagjalda og skatta!

 Á meðan fitna umboðsmenn mengunarkvóta eins og svín og graðka í gírug gin sín upphæðir sem venjulegur maður skilur varla.

 Eruð þið ekki að grínast?!

 Hvurs konar andskotans "fréttamennska" er þetta eiginlega?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan, þar sem hafið kólnar. Tyggið á því, kampavínslepjandi Parísarslúbertar!


mbl.is Hlýnun sjávar 40% meiri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ég næðist á upptöku.

 Ef ég næðist á upptöku að tala um Björn Leví Gunnarsson sem stjórnmálamann, þá myndi ég örugglega kalla hann fávita, af og til, en ekki síst fyrirspurnabjálfa og drullusokk. Þar sem engin upptaka er til, þar sem ég heyrist segja þetta, hlýt ég að vera "stikkfrí" og orð mín því ekki gagnrýnanleg og trauðla hætta á lögsókn. Ég skrifa þetta, en var ekki "tekinnn upp".

 Í alvöru, gott fólk. Er þetta umræðumunstur sem við viljum? Hvaða skoðun hefur Björn Leví á Vaðlaheiðargöngum, Íslenskri utanríkispólitík, ofvexti kerfisins, eða kjörum hins vinnandi manns? Getur einhver gerst svo vinsamlegur að benda mér á stafkrók, þar sem hugsjónir þessarar grautarsúpu finnast einhversstaðar staður? 

 Þvílíkur andskotans asni, en þið heyrðuð mig ekki segja það.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Kallar Sigmund óheiðarlegan lýðskrumara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Pólitísk spilamennska"

 Fátt er meiri pólitísk spilamennska en að drulla upp á bak í opinberu embætti, stofna síðan um það "rýnihóp" og láta ávallt aðra svara fyrir eigin afglöp og axarsköft. Að eiga setu í opinberum "rýnihópi", sem ætlað er að rýna í sitt eigið klúður, er náttúrulega ekkert annað en algert snilldarbragð í pólitískri spilamennsku. Tala nú ekki um ef ávallt er hægt að finna meðhlægjendur og bjálfa, sem elska athygli og umfjöllun um sjálfa sig, sem verja skítinn út í hið óendanlega. Stólar og völd eru svo djöfull "cosy" og þægilegir. Hver borgar brúsann skiptir engu máli hjá þessu veruleikafirrta liði, sem svífur um á rósrauðu nostalgíuskýi eigin ágætis. 

 Að þetta fólk skuli hafa mannaforráð, eða það sem enn verra er, völd yfir almenningi, er skelfilegt og mun að lokum sliga hinn almenna borgara.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Lykti af pólitískri spilamennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veggjöld án skipulagðrar innheimtu?

 Jón Gunnarsson er undarlegur stjórnmálamaður, ef þessi frétt er rétt, en ekki hugarburður lélegs "blaðamanns", sem því miður hvarflar allt of oft að manni þessi dægrin. Annað hvort taka "fréttamenn" illa eftir eða taka bara fréttatilkynningar og slengja þeim í loftið eins og aular í góðri innivinnu, eða bulla hreinlega hvert viðtalið eftir því sem þeir muna best og fellur að þeirra skoðunum. Bæta jafnvel við, ef svo ber undir. Fréttamennskan er, skulum við segja á mjög viðkvæmu tímabili þessi dægrin, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

 Veggjöld skulu semsagt lögð á sem fyrst, en enginn virðist hafa hugmynd um framkvæmdina. Hvernig innheimta skuli gjöldin, hvar eða hvernig. Gjöldin skulu lögð á, sama hvað tautar eða raular. Blaðamaður spyr að sjálfsögðu einskis og þar með hefur Jón Gunnarsson komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Ekki öll svo galin, en trúverðugleikann skortir og enginn spyr neins.

 Tuðarinn hefur ekkert á móti gjöldum fyrir veitta þjónustu, eftir að hún er veitt. Þegar hinsvegar hérlendir stjórnmálamenn lofa mér einhverju og krefjast fyrirframgreiðslu, setur að mér ugg. Uggur sem vissulega er réttlætanlegur, því sjaldan er ein báran stök og aldrei eins mikið og þegar hérlendir stjórnmálamenn ljúga og lofa út um eyrun á sér, með bros á vör og standa síðan ekki við nokkurn skapaðan hlut, kjörtímabil eftir kjörtímabil.

 "You pay now, we deliver later" hugnast mér ekki hætis hót, komandi úr munni atvinnupólitíkur og dreift af vafasömum fjölmiðli, þar sem pallíettur áramótadansleikjanna og þvælukennt gjálífisrugl einskisnokkurs, virðist mest lesið. Ég meina, hverjum er ekki sama um það hvort einhver hollívúd stjarnan hafi áhyggjur af appelsínuhúðinni á lærunum á sér, eða hvort rassinn á kardasían draslinu hafi stækkað eða minnkað, hún éti gras eða kjöt? Einhver? Eru virkilega allir orðnir svo steiktir af þessu brjálæði, að þeir láti skattheimtu liggja hjá garði?

 Álögur, í nafni álagna, hugnast mér ekki. Álögur fyrir veitta þjónustu, greiði ég glaður. Veggjöld án vega tek ég ekki í mál. Brosandi Jón, þoli ég hreinlega ekki og finnst trauðla róttækara íhald, en ég sjálfur. Hvurn fjandann fór flokkurinn minn eiginlega og þær hugsjónir, sem hann eitt sinn stóð fyrir?

  Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Liggur fyrir að málið sé umdeilt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránleg kauphöll.

 Það er undarlegt að verið sé að brölta við að reka kauphöll á Íslandi. Ísland er örríki og á hlutabréfamarkaðnum eru því sárafá fyrirtæki. Sum þeirra eru reyndar ansi stór á okkar mælikvarða. Jafnvel tugmilljarða virði eða meir, þó ekki séu þau mörg. Að einsdags viðskipti uppá einhverja hundraðþúsund kalla, eða jafnvel örfáar milljónir, skuli ákvarða markaðsvirði þessara fyrirtækja er hreinn og klár brandari. Allt að því sárgrætilega vitlaust, en það er ekki hægt að vera minni menn en aðrir, þegar þvæluviðskipti eru annars vegar. Kauhöllin á Íslandi er sárgrætilegt fyrirbæri, enda getur hún varla talist meira en pínulítil verðbréfastofa.

 Svona fíflagangur á ekkert skilt með fjárfestingu. Þetta eru ekki fjárfestingaviðskipti, heldur er þetta ekkert annað en fjárhættuspil, sem því miður á ekki aðeins við um hér á landi. Að þessir viðskiptahættir skuli allt að því stjórna hagkerfi heimsins er með ólíkindum. Flest slæmt, sem hent hefur efnahagslífið á yfirleitt upptök sín í þessu fíflaríi, þegar loftbóla huglægra viðskipta með "goodwill" og væntingar springur. Það er engin framleiðni í hlutabréfamörkuðum. Þeir skapa ekkert og framleiða ekkert annað en vandræði og hörmungar, eins og dæmin sanna. Almennir sparifjáreigendur ættu að reyna að halda sig sem fjærst frá þessari óværu. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Kauphöllin rauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband