Hvar er Þistilfjarðarkúvendingurinn?

 VG er sennilega sá flokkur Íslenskur, sem á met í því að framselja atkvæði kjósenda sinna á lægsta "prís" sem sést hefur á pólitískum uppboðsmarkaði stjórnmálanna. Stofnandi flokksins, sem nánast barði í borðið, degi fyrir kosningar, þegar hann lagði áherslu á það, að Ísland væri ekki á leið í esb, undir hans stjórn, snérist hraðar en túrbína í bíl eða orkuveri, þegar hann kúventist og samþykkti að ganga í esb.

 Ástæðan.: Jú ráðherrastóll. Ráðherrastóll, þar sem honum tókst með óskiljanlegri heimsku og vanþekkingu, að koma málum þannig fyrir, að í stað þess að gæta hagsmuna almennings, tók hann sér forystusæti í hagsmunagæslu hrægamma og peningaafla. Hrægamma sem fengu eignasöfn föllnu bankanna á hrakvirði, með skotleyfi á almenning um að rukka kröfurnar á 100%. Þúsundir hérlendra fjölskyldna voru bornar út á Guð og gaddinn, undir stjórn allsherjarráðherrans úr Þistilfirðinum. Þess hins sama og heyrist ekki bofs frá, þessa dagana, því hann hefur fjarstýringuna á málflutningi flokksins síns og lætur aðra bera út fagnaðarerindið. Hefur tryggt það, að öll hans afglöp gegn Íslenskri alþýðu eru nú umlukin leyndarhjúp, í hundrað ára þöggunarskúffu, bak við luktar dyr. Ömurlegur leyndarhyggjupúki, enda löngu steingeldur í stólnum sínum. Mosavaxinn þurs, haldinn algerri blindu á neitt annað en eigið ágæti.

 Það má vel vera að Kata sé sæt, en meðan henni er fjarstýrt af Þistifjarðarkúvendingnum, virkar hún illa. Innihaldslaust blaður um aukin útgjöld, án skýringa um hvernig eigi að fjármagna þau, eru einhver ömurlegustu populistatrix í pólitík. Það er ekkert til sem heitir frí máltíð eða súpa. Einhver borgar að lokum. Skattahækkanir og auknar álögur eru hagstjórnartæki sósíalista. Ekkert annað kemst að. Nái þessi hugsun eyrum kjósenda, erum við í djúpum skít og innan fárra ára ekki lengur sjálfstæð.

 Þúsundir fjölskyldna voru tættar í spað, sökum undirlægjuháttar Þistilfjarðarkúvendingsins við peningaöflin.  Sá sami kúvendingur leynist nú sem refur í bið eftir bráð og lætur lítið á sér kræla. Segir ekki múkk, en lætur fjarstýringuna um sjónarspilið. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Stóra verkefnið alvöru stöðugleiki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband