Stórkostlegur liðsauki !

 Hið mikla pólitíska stórmenni, rónavinur með meiru, Jón Gnarr, hefur ákveðið að helga Samfylkingunni krafta sína, í komandi kosningum. Má með sanni segja að þar hafi aldeilis hvalreki dregist að ströndum Samfylkingarinnar. Landsfrægt er orðið hve stórkostlega Jóni Gnarr tókst til, sem "burgermeister" höfuðstaðarins, þar sem stjórnviska hans og ótrúleg þekking blómstraði, borgarbúum til mikilla heilla og framfara. Meira að segja smáfuglar borgarinnar fengu afdrep í sérhönnuðum fuglahúsum, sem komið var fyrir meðfram Hofsvallagötunni, svo eilítið dæmi um stórfengleik þessa mikla stjórnviskusnillings sé getið. 

 Ekki er að efa, að þessi stórkostlega viðbót í fótgöngulið Samfylkingarinnar, muni hefja fylgi hennar til hæstu hæða. Eina spurningin er, hve lengi þessi nýja viðbót nenni að standa í þessu og leiti á önnur mið.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Jón Gnarr genginn í Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband