7.5.2017 | 04:20
Þvælusamkoma allsherjarruglsins........
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er orðin að þvælukeppni Andskotans. Glimmerskreyttur andveruleiki í landi, þar sem geysar styrjöld, verður aldrei annað en glassúr og lélegt drasl. Nægir að hlusta á framlag Íslands. Algerlega steindautt "visual effect"um ekki neitt. Svala fín og flott, en tilgangsleysið algert. Íslendingar munu aldrei vinna þessa keppni, í heppni, út á það að við séum eitthvað "spes". "Sorry" kæru landsmenn, því innar sem þessi keppni fjarlægist sjálfa sig, eigum við minni möguleika. Vonandi gengur frammistaða Íslands fram af okkur "for life". Semsagt hætta að taka þátt í þessari þvælu.
Hægt er að nota þær hundrað milljónir, sem þessi della kostar, í svo margt annað. Eins og til dæmis hjólreiðastíga eða aðrar samgönguhamlandi aðgerðir. Allt fyrir dag og hjól, þar sem hjálmar sleikja rassinn á degi.....hverjum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Gleði og glimmer í skugga stríðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)