Ömurlegt, ömurlegt, ömurlegt!!!

 Það er ömurlegt að sjá hvernig verið er að eyðileggqja þetta svæði. Þær byggingar, sem þarna er verið að byggja, eru að mínu mati einhver almesti ófögnuður, sem sprottið hefur upp úr jörðinni, í húsagerð. Trauðla er hægt að kalla þetta húsagerðarlist, svo forljót, steingeld og fráhrindandi eru þessi fuglabjörg úr steinsteypu og gleri, sem núverandi borgarstjórn hefur gefið leyfi fyrir.

Borgarstjórn fagurgalans og kjaftæðisins undanfarin tæp átta ár, hefur hér toppað bullið og þvæluna úr sjálfri sér. Hún hefði betur úthlutað lóðum til almennings, víðar um borgina, en það gat hún ekki. Steinrunninn sjálfselskuklúbbur, lattelepjandi sveimhuga, sem dreymir allar nætur um göngu og hjólastíga, milli þess sem þeir ganga á borgarlínu, sparka í bíla og dæla mannaskít í sjóinn. Á daginn eyða þeir annara manna fé í dellu og eru komnir vel á veg með að gera Reykjavíkurborg gjaldþrota. 

 Déskotinn bara, að horfa upp á þennan ófögnuð.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Tóku í notkun nýja Geirsgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband