Ábyrgðarlaust blaður fjármálaráðherra.

 Ef embætti Ríkislögreglustjóra býr yfir vitneskju um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, greinir embættið að sjálfsögðu ekki frá því í fjölmiðlum. Búi fjármálaráðherra landsins yfir þess háttar upplýsingum, eins og hann hefur fullyrt opinberlega, hlýtur hann að teljast vanhæfur með öllu, með því að greina frá þeim. Búi fjármálaráðherra ekki yfir neinum óyggjandi upplýsingum, um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, en segist samt vita af því, er hann einnig algerlega vanhæfur sem ráðherra og ber að víkja nú þegar.

 Það er sama hvernig litið er á þetta mál, Benedikt Jóhannesson er ekki starfi sínu vaxinn og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér. Það mun hann hinsvegar að sjálfsögðu ekki gera. Hann mun áfram böðlast fram veginn, með öllum mögulegum ráðum til að sverta lögeyri landsins, með það að markmiði að eyða honum af yfirborði jarðar, svo moka megi Íslandi í gin gráðugra bjúrókrata í Brussel. Þar dreymir ráðherrann um sína fjöl, á skattfrjálsum launum og feitum eftirlaunum, að þjónkuninni lokinni.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Kannast ekki við málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja niður gjaldtökuhliðið!

 Gísli Gíslason nefnir það ekki í þessu viðtali, þar sem hann mærir norðmenn og færeyinga fyrir þeirra göng, að hvergi nokkursstaðar, hvorki í Noregi né Færeyjum, þarf að stoppa til að borga í hliði, hvorki áður eða eftir að ekið er um göngin. Allt er myndvætt og "sjálfrukkandi". Á álagstímum er það gjaldtökuhliðið sem veldur mestu töfunum í Hvalfjarðargöngunum. Umferð gæti hæglega runnið allt að tvisvar til þrisvar sinnum hraðar í gegn, ef ekki væri fyrir stoppið til að borga.

Nýjustu tækni í málið, burtu með hliðið og sjáum hvað setur. 

Koma svo Gísli!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Ný göng óhjákvæmileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samreisn?

Það slitnar ekki slefan á milli forkólfa Vireisnar og Samfylkingarinnar, þessa dagana. Varla flettandi blöðum öðruvísi en lesa fréttir af Viðreisnarburgeisum að skrifa undir innantómt loforðakjaftæði og lygaplögg með antíbílistanum, eða þá núna þetta! Fyrrum einsatkvæðisformaður einsmálsflokksins orðinn formaður Tryggingastofnunar. Bíðið nú aðeins hæg. Formaður? Annað hvort er blaðasnápurinn sem reit þessa frétt kjáni, eða Árni Páll orðinn formaður Tryggingastofnunar. Er hann þá forstjóri? Nei, hann er sennilega titlaður formaður stjórnar Tryggingastofnunar og þar af leiðand stjórnarformaður, ekki satt? Hvað um það.

Það er grugg í pípunum meðal Viðreisnar og deginum ljósara að þar á bæ ætla menn sér í borgarstjórn í næstu kosningum, með samfó og síðan taka landið allt í næstu þingkosningum, einnig með samfó. Sennilega verður Skrækur Skellibjalla helsta tromp Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum, ef að líkum lætur, mávunum á Tjörninni til mikils hugarangurs. Mávastofninn rétt nýbúinn að ná sér eftir "The Reykjavík Grand Pond Seagle Massacre" Skellibjöllunnar, þá er hann sat í Borgarstjórn, já eða sat ekki. Um það má deila. Hann var víst ansi mikið fjarverandi, en það er nú allt önnur saga.

Viðreisn er viðsjárvert stjórnmálaafl, sem einskis lætur ófreistað að koma Íslandi undir járnhæl fröken Merkel, innan vébanda fjórða ríkisins og Stór-Þýskalands. Viðreisn verður hinsvegar ekki kápan úr því klæðinu, þó hún sleiki sér upp við Samfó. Úr því verður aldrei annað en einhverskonar samreisn, hvernig svosem ber að skilja það. Það hef ég reyndar ekki hugmynd um, enda einungis að losa um smá tuðhnút sem var farinn að plaga mig, þar til nú, að burt er ritaður úr sýsteminu.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan, þar sem sæljón leika við hvurn sinn fingur og mörgæsir fljúga um loftin blá.


mbl.is Árni Páll formaður Tryggingastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband