Maður með meiningu.

 Kratar geta eflaust að eilífu þráttað um hvað fór úrskeiðis. Enginn krati, sem verið hefur í forystu fyrir sinn flokk mun hinsvegar viðurkenna mistök sín. Þar er kratismanum best lýst. Bullaðu og þvaðraðu, en láttu síðan aðra taka afleiðingunum. Sighvatur á heiður skilinn, fyrir einlægni sína og raunsanna greiningu á vandanum. Flottur karl, Sighvatur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is „Dómur almennings liggur fyrir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tyrkland í esb?

Ef esb er enn á því að Tyrkland gerist aðili, er það samband endanlega dauðadæmt. Ekki það að það hafi ekki verið það fyrir, en aðeins það að sá möguleiki sé enn fyrir hendi, að Tyrkland gerist aðili er hrein og klár geggjun. Fróðlegt væri að heyra frá þeim, hér á landi, sem enn aðhyllast inngöngu í skrifræðis og embættismannaviðbjóðinn, hvað þeim þyki um inngöngu Tyrklands í forina. Tyrkland hefur hafið grafargröft síns fátæklega lýðræðis, með því að veita þessum nýja Hitler algert alræði. Ætli þorgerður Katrín og EngeyjarBenni tryllist af kæti, við inngöngu Tyrklands í draumalandið þeirra?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Segir stofnunum að skipta sér ekki af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr kafli afturábak.

Undarlegt verður að teljast að heil þjóð, sem hefur það þokkalegt, svona á almenna vísu, miðað við allt, kýs yfir sig afturhvarf til fortíðar og kreddna fáránlegra trúarbragðaöfgasinna. Nýr Adolf Hitler hefur litið dagsins ljós og fyrir tyrkjum liggur ekkert annað en hrörnun, niðurlæging og mæða, meðan þessi brjálæðingur verður við völd. Hann gæti ríkt allt til ársins tvöþúsundtuttuguog níu, ef honum endist aldur til. Haldi hann það út, verður Tyrkland á pari við Sómalíu, en Kaninn sennilega enn "með aðstöðu". Er virkilega enginn að kveikja á perunni?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Nýr kafli að hefjast í Tyrklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn logar skært á Eiffel turninum.

 Hræsni vesturlanda virðast engin takmörk sett. Ólánsbjálfi ekur inn í verslunarmiðstöð í Svíþjóð og veröldin fer á hvolf. Slökkt er á Eiffel turninum í minningu þeirra fjögurra sem fórust í þeirri árás. Hátt í hundrað börn eru skömmu síðar myrt í sprengjutilræði í Sýrlandi, en Eiffel turninn logar áfram af ljósum og gleði sem aldrei fyrr. Djöfulsins hræsni sem þetta er. Afsakið orðbragðið, en hvað getur maður sagt? Djöfulsins andskotans fokking fokk, fer ekki einu sinni hálfa leið með að fyrirlíta hræsnina.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Heyrði grát og óp alls staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringrásin.

 Hringrásin í Landeyjarhöfn heldur áfram. Enn er það frétt, ef Herjólfur kemst þangað. Sér enginn neitt bogið við þetta? Ekki einu sinni bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum? Það stöðvar ekkert mannlegt afl sandinn, í eilífri leit sinni vestur með suðurströnd Íslands. Hvað ætli mörg þúsund milljónum af almannafé þurfi að kasta á glæ, áður en þessari þvælu, sem höfnin er, verður leyft að fyllast af sandi og menn viðurkenni mistökin? 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Dýpkun gengur vel við Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þang ekki sjávarafurð?

 Ef þang er sjávarafurð, hlýtur það að vera sameign þjóðarinnar. Það hlýtur því að þurfa að greiða af því auðlindagjald. Samkvæmt lögum mega útlendingar ekki eiga meirihluta í sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi. 

Hálendið, náttúruperlur og annað sem gert er að féþúfu hlýtur einnig að teljast til sameignar þjóðarinnar, en er fénýtt án nokkurra teljandi gjalda. Ekki einu sinni virðisaukaskatts.

 Mjólk, brauð, bleyjur og dömubindi bera hinsvegar fullan skatt.

 Er ekki Ísland dásamlega galið?

 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Eignast meirihluta í Þörungaverksmiðjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríblaðaflopparinn gerist sósíalisti.

 Fríblaðafloppari, handlangari og fyrrum senditík auðvaldsins, reynir þessa dagana að telja landsmönnum trú um að hann sé orðinn sósíalisti. Sennilega hefur sósíalismanum aldrei fyrr hlotnast sá mikli vafasami heiður, að svona mannvitsbrekka skuli telja sig til hans. Þ.e.a.s sósíalismans. Húmorisminn hefur hinsvegar náð nýjum hæðum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Sósíalistaflokkur verði stofnaður 1. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír svíar, þrjúhundruð þúsund sýrlendingar.

 Heimurinn bregst við árásinni. Þjóðarleiðtogar senda samúðarskeyti. Hörmungaratburður hefur átt sér stað, svo mikið er víst. Í hvert sinn er saklausir borgarar farast í árásum fáráðlinga, bregst heimurinn við. Heimurinn bregst hinsvegar mjög misjafnlega við, eftir því hvar saklausir borgarar farast í árásum fáráðlinga. Atburðurinn í Svíðþjóð í gær hefur ekki verið að fullu upplýstur. Hver gerði þetta, eða hver tilgangurinn var. Allar svona árásir eru forkastanlegar og þeir sem að þeim standa, eða fremja þær, eru huglausar bleyður. Umfjöllunin er jafn misjöfn og svæðaskiptingin býður uppá. Því nær OKKUR sem árásin er gerð, magnast samúðin. Því fjær sem svona ófögnuður gerist, virðast viðbrögðin hinsvegar minnka og samúðin jafnhliða. Yfir þrjú hundruð þúsund sýrlendingar hafa verið drepnir á undanförnum árum, í átökunum þar. Það hefur ekki verið slökkt á Eifel turninum í eina mínútu, vegna þeirra. Hugur allra er með aðstandendum fórnarlambanna í Gautaborg í gær, en er ekki kominn tími til að útvíkka samúðina og leggjast á árarnar til varnar frekari blóðsúthellingum fáráðlinga, víðar um heiminn? Mannslíf er jú mannslíf, ekki satt? Á staðsetning að skipta máli, er svo mikið sem eitt þeirra glatast, fyrir hendi fáráðlinga?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Heimurinn bregst við árásinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra, Gunnar Smári og IKEA.

 Tuðarinn var ekki alveg viss um hvort tilvitnunin í viðtal Financial Times við ESB sinnann og fjármálaráðherrann, Engeyjar-Benna, eða fréttin um Gunnar Smára, fyrrum Baugshandlangara og fríblaðafloppara, um stofnun sósíalistaflokks, væru 1. apríl gabb hjá mbl.is. Var helst á því að sennilega væri grínið tvöfalt þetta árið. Því miður virðist svo ekki vera, heldur var það fréttin um nýjan IKEA klúbb. Mikið hefði nú verið betra ef IKEA grínið væri raunverulegt, en hitt bullið sett til hliðar, sem hver önnur þvæla, sem það í raun og veru er.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Óbreytt ástand „óforsvaranlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband