Til hvers þarf þá ESB?

 Fróðlegt, að þessi helsti boðberi ægisvalds Evræpusambandsins skuli velta sér upp úr þessum pælingum. Er hann farinn að sjá ljósið, eða hefur hann gert sér grein fyrir því að kjötkatlarnir eru að renna honum úr greipum? 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Össur vill sjá Alþingi stjórna Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira ruglið.

 Búið er að samþykkja verksmiðjuna að Bakka. Búið er að samþykkja orkuverið. Orkuflutningur frá virkjuninni til verksmiðjunnar þá stöðvuð, af Landvernd? Hvaða rugl er þetta eiginlega? Landvernd eru hreint ágætis samtök, en þetta er ekkert annað en kjánagangur! Landvernd er að skjóta sig í fótinn, með þessari uppvöðslu sinni og orðin óábyrg og fjandsamleg samfélaginu. Það mun koma niður á samtökunum, seinna meir. Hættið þessari déskotans dellu! Sættið ykkur við orðinn hlut og snúið ykkur að öðru. Verkefnin eru ærin og ef taka á Lanvernd alvarlega í framtíðinni, væri sennilega besti kosturinn að flokka Bakka og Þeystareyki sem tapað stríð. Það verður ekki aftur snúið.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Hafna stöðvunarkröfu Landverndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynferðislegt ofbeldi?

 Fyrirsögn þessi er ekkert annað en tær og skýr lýsing á kynferðislegu ofbeldi. Pólitíkin er slæm tík, en sjónarhorn Braga Valdimars er störskemmtilegt. Hvar værum við stödd án þess að hafa smá "húmör" fyrir þessu öllu saman og geta gert smá grín að öllu saman?.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Þreifingar, þukl og línur skýrast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottning, eða skipper?

Birgitta er semsagt búin að ákveða þetta?! Það eina sem eftir er, er að þingflokkurinn, grúppan, hópurinn, söfnuðurinn, eða hvað svo sem drottningin telur best við eiga, eigi "bara eftir að samþykkja". Lýðræðið í sinni tærustu mynd?! Völdin til fólksins og annað "jaríjarí". Enginn þeirra flokka, sem nú ræða saman um stjórnarmyndun, hefur gefið neitt út um störf sín eða verkaskiptingu, ef af stjórnarsamstarfi verður. Frumhlaup Pírata, óábyrgar yfirlýsingar og annað blaður, fyrir og eftir kosningar, er skilgreint í læknisfræðinni sem fullsnemmt og á stundum vandræðlega snöggt sáðlát, en sjáum hvað setur. Rekkjunautarnir munu a.m.k. ekki njóta bólfaranna, svo mikið er víst.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan. 


mbl.is Þyrftu að segja af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Stóri fundurinn"?

 Lækjarbrekkufundurinn, fyrir kosningar, var líka "stór". Út úr honum kom ekki nokkur skapaður hlutur, annað en bla, bla, bla. Viðreisn vill ganga í esb, píratar vilja bara eitthvað, til að mótmæla og hakka sig inn í netheima, stúta Stjórnarskránni og höfundarrétti, afþvíbara. Björt Framtíð er orðin taglhnýtingur Viðreisnar, í uppþvottahönskum. VG leiðir umræðuna, nú um stundir. VG klauf sjálft sig í herðar niður, með undirlægju, fyrir ráðherrastóla, í þarsíðustu ríkisstjórn. Ætlar Katrín að fara aftur gegn yfirlýstri stefnu flokksins? "Það virkuðu allir mjög jákvæðir" er ekki nóg. Það hlýtur að koma sú stund að þetta rennur út í sandinn. Hvað við tekur, kemur í ljós. Fimm flokka ríkisstjórn, með svo gisið og óútreiknanlegt bakland gengur einfaldlega ekki upp. Verst er að horfa uppá stjórnmálamenn, sem telja ábyrga ríkisstjórnun snúast um vinsældir síns sjálfs. Á meðan liggur Þistilfjarðarkúvendingurinn í leyni, ásamt kjölturakka sínum og segir ekki orð. Ekki eitt einasta orð, í hartnær þrjá mánuði! Gersamlega horfinn af yfirborði jarðar, ásamt skósveini sínum. Fjölmiðlar að standa sig? Trauðla.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is „Það virkuðu allir mjög jákvæðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Há laun sökum ábyrgðar?

 Hver sá sem les þessa frétt, sér í hendi sér að háum launum fylgir sáralítil ábyrgð. Burt með bankastjórann! Ekki seinna en strax, án abyrgðarálags, sökum vanrækslu.

 Góðar atundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Handvömm Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleygurinn, Viðreisn.

 Upp er sprottinn fleygur, eða fleygildi, í hérlendri pólitík. Viðreisn, sem stofnað var til af aðeins einum ásetningi.: Að ganga í esb, henda krónunni og aftengja lýðræðið á Íslandi, með flutningi allra ákvarðana okkar málefna til brusselvaldsins, blýantsnagara og reglugerðarbjálfa þess. Viðreisn virðist hafa öll tögl og hagldir í stjórnarmyndunarviðræðum, þessa dagana. Viðreisn er hin nýja og nútímalega Framsókn, opin í báða enda, nema kaupfélagið, stafað ESB, er grunnurinn. Ef ekki á að halda áfram delluumsókn, með útsýnisferð í pakkann, sem ekket þarf að skoða, því allt liggur fyrir, verður þetta fleygildi ekki með í ríkisstjórn. Punktur. Kallað fjárkúgun í flestum löndum, öðrum en á Íslandi, enda Viðreisn samsett kúlulánasleppurum og silfurskeiðungum. Hvað svo sem segja má um forystu VG, er harla ólíklegt að þau taki saman við esb sinna, annað sinnið, eða hvað? Eru katan og Þistilfjarðarkúvendingurinn tilbúin í annan snúning, að fengnum ráðherrastólum? 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Blasir við að Katrín fái umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að heyra.

 Mikið er gott að heyra ábendingu Gríms um það að þeim sem enn eru ungir megi ekki gleyma því að þeir sem eldri eru voru einu sinni ungir. Flottur vinkill og vel tímabær. Iceland Airways tónlistarhátíðin er glæsileg í alla staði og orðin heimsþekkt. Virkilega gaman og þakkarvert að heyra frá einni driffjöður þessa viðburðar, að gamalt fólk sé líka fólk. Gangi þessi hátíð sem best. Við erum öll fólk og höfum upplifað ýmislegt. Þegar kemur að tónlist er hreint með ólíkindum hve hægt er að tengja kynslóðirnar saman. Áfram Airways!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Hipsterar innan um heimilismenn á Grund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurlaun?

 Kjararáði er ætlað að úrskurða um þessi laun, samkvæmt lögum. Það hefur nú gert það. Tímasetningin er afleit, en tæpast er þetta niðustaða sem komist var að á kosningavökum flokkanna, nú um helgina. Hækkunin er veruleg og í miklu ósamræmi við hækkanir annara þjóðfélagshópa. Upphæðirnar sem launin eru hækkuð um eru nánast stjarnfræðilega háar, að sumra mati og vel skiljanlegt að þetta veki reiði og pirring, víða í samfélaginu. Þessar hækkanir eru þó sem betur fer ekki afturvirkar, eins og var hjá mörgum öðrum yfirstressuðum og síáreittum embættismönnum, að eigin sögn, fyrr á árinu. Það læðist að Tuðaranum að þessar hækkanir hafi legið fyrir, fyrir kjördag, en það er nú einungis hugboð. Hætt er við að þessar upplýsingar hefðu hrært upp í úrslitunum, hefðu þær verið gerðar kunnar, fyrir kjördag, þó þær komi öllum þingmönnum til góða, hvar í flokki svosem standa. Gott að vita til þess að þingmenn og æðstu stjórnendur landsins geti einbeitt sér að því að vinna þjóðinni gagn, án þess að kveljast fjárhagslega. Þeim er líka eins gott að standa sig og mæta í vinnuna. Tuðarinn heimtar stimpilklukku á Alþingi á næsta kjörtímabili og krefst þess að almannahagsmunir séu teknir fram yfir persónulegt pot og brölt, í eigin þágu, eða vandamanna. Eins og kom í ljós í þessum síðustu kosningum er það brottrekstrarsök að standa sig ekki í stykkinu.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Laun forseta hækka um hálfa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband